á sama stað eru einnig til 2 bílar!!!!;)
Nei segi bara svona! Fór í Babysam núna í vikunni að ná í aukahlut á Tripp trapp stólinn, og þar sem ég hafði ætlað að sækja hann fyrir helgi en ekki verið með gjafabréfið á mér setti gellan það undir afgreiðsluborðið og sagðist ætla að geyma það þar. Þannig að þegar ég fór ss núna í vikunni að sækja það vissi ég að það tæki mig núll eina að pikka þetta upp og skildi því SN eftir út í bíl sofandi beint fyrir framan búðina.. (Já kallið mig óhæfa móður en það er nú ekkert lítið fyrirtæki að drösla honum inn og útúr bílnum því ég er ekki með base-inn í bílnum )
Ég ss eins og vindurinn rauk inn og út út búðinni og SN mun aldrei vita það að hann var einn!!;) … Nema að sitthvoru megin við mig voru bílar, báðir í gangi og báðir með ungabörnum í, og báðir ÓLÆSTIR!!!. …. jibb… hvað heldur fólk að gerist… hitastigið droppi niður í mínus 40 á þessum stutta tíma… og þar að auki var hiti úti líka!!!.. En mest hefði ég þó áhyggjur af því að einhverjir haugar væru á ferðinni og myndu hreinlega taka bílinn!! Alveg hreint kitlaði það mann að færa bílana!!… En lét það ógert!!;)
Svo á morgun mun ég drukkna úr fríðleika… Hann er mikill fyrir en ég ss verð eikkað módel í lokaprófi í 2 tíma andlitsbaði!! Kostar mig ekki krónu!
Fór svo í plokk og lit til Raggýjar í vikunni á spottprís og svo fór ég í gær í klipp og lit í Iðnskólanum fyrir efniskostnaði!!
Jújú hagsýn maður…. Já og við mæðginin erum byrjuð í leikfimi saman þannig að ég verð eins og spýta eftir 5 vikur…. (það má láta sig dreyma!!:P )
Svo er ég aldeilis mikil húsmóðir og er búin að fjárfesta í frystikistu!!
Nú getiði aldeilis farið að gefa mér humar og lundir og annað ljúfmeti til að fylla hana!! 
Svo hérna stuttar neytendafréttir, mæli ekki með snertilausu þvottastöðinni hjá Löðri í Bæjarlind, eða allavega ekki í gullþvotti sem er eikkur svaka vetrarþvottur! Bíllinn var enn skítugur þegar hann kom út…. og samt eru ekki nema 2 vikur síðan ég fór með hann í hina Löðurstöðina í Bæjó og þar er meira að segja 100 kjélli ódýrara.. En það var svo mikil röð þar þannig að við ákváðum að prófa þessa með þessum litla árangri! :S
Neytenda Nanna kveður að sinni